
Leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja eru gefnar út af Viðskiptaráði Íslands, Samtökum atvinnulífsins og Nasdaq Iceland. Þær komu fyrst út árið 2004 og hafa verið endurskoðaðar reglulega síðan. Sjöunda útgáfa tekur gildi 1. janúar 2027.
Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja er ætlað að nýtast sem verkfæri stjórna og stjórnenda til að mæta þeirri ábyrgð sem á þeim hvílir. Með því að fylgja góðum stjórnarháttum má styrkja innviði fyrirtækja og efla almennt traust gagnvart viðskiptalífinu. Hvort tveggja skiptir sköpum fyrir samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja.

Leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja eru gefnar út af Viðskiptaráði Íslands, Samtökum atvinnulífsins og Nasdaq Iceland. Þær komu fyrst út árið 2004 og hafa verið endurskoðaðar reglulega síðan. Sjöunda útgáfa tekur gildi 1. janúar 2027.
Starfshópurinn á í samstarfi við aðila sem gefa út sambærilegar leiðbeiningar í Evrópu og á Norðurlöndum, undir heitunum European Corporate Governance Network og Nordic Corporate Governance.
Í starfshópnum sátu fulltrúar útgáfuaðila ásamt sérfræðingum úr atvinnulífi og háskólasamfélaginu. Við endurskoðunina var leitað til aðildarfyrirtækja Viðskiptaráðs og Samtaka atvinnulífsins, mennta- og eftirlitsstofnana, sérfræðinga í stjórnarháttum og stjórnarmanna íslenskra fyrirtækja.

Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins, Nasdaq á Íslandi og Stjórnvísi hafa tekið höndum saman um að bæta eftirfylgni fyrirtækja við leiðbeiningar um góða stjórnarhætti. Öllum fyrirtækjum gefst tækifæri til að undirgangast formlegt mat á starfsháttum stjórnar og stjórnenda.
Framkvæmd matsins er í höndum Stjórnvísi, umsjónaraðila verkefnisins, en matsferlið byggir í meginatriðum á leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja. Úttektaraðilar sem metnir eru hæfir annast söfnun gagna, viðtöl við stjórnarmenn og skýrslugerð til félagsins og matsaðila á vegum Stjórnvísi.
Fyrirtæki sem standast matið fá viðurkenninguna „Fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum“ sem gildir í þrjú ár, nema verulegar breytingar verði á stjórn eða eignarhaldi fyrirtækisins.
Upplýsingar varðandi leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja veita tengiliðir hjá útgáfuaðilum.