Meginmarkmið leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja er að stuðla að góðum stjórnarháttum með því að skýra hlutverk og ábyrgð stjórnenda fyrirtækja og auðvelda þeim þannig að rækja störf sín og treysta um leið hag hluthafa og annarra hagaðila.
Leiðbeiningum um góða stjórnarhætti er ætlað að nýtast sem verkfæri stjórna og stjórnenda til að mæta þeirri ábyrgð sem á þeim hvílir. Með því að fylgja góðum stjórnarháttum má styrkja innviði fyrirtækja og efla almennt traust gagnvart viðskiptalífinu. Hvort tveggja skiptir sköpum fyrir samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja.
Leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja fela í sér tilmæli til viðbótar við lög og reglur og „fylgið eða skýrið“ nálgunin gerir það að verkum að þeim fylgir meiri sveigjanleiki en slíku regluverki, enda er erfitt að setja viðmið sem henta fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum.
Meirihluti stjórnarmanna ætti að vera óháður félaginu og daglegum stjórnendum þess.
Hér er að finna þær breytingar sem gerðar hafa verið á leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja frá því í 6. útgáfu.



Viðurkenningarnar eru veittar af Stjórnvísi, Viðskiptaráði Íslands, Samtökum atvinnulífsins og Nasdaq Iceland. Fyrirtæki sem standast matið fá viðurkenninguna „Fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum“ sem gildir í þrjú ár.